RITLISTARHÓPUR
KÓPAVOGS
Útgefin verk hópsins


Ritlistarhópur  Kópavogs

Ritlistarhópur Kópavogs varð til árið 1995, á fjörutíu ára afmælisári bæjarins. Þá var haldinn upplestur Kópavogsskálda, annarsvegar í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni og hinsvegar í Bókasafni Kópavogs og kom í ljós að fleiri skáld voru búsett í Kópavogi en menn hafði órað fyrir. Vaknaði þá strax áhugi meðal nokkurra skálda að hittast reglulega til skrafs og ráðagerða í Kaffistofu Gerðarsafns. Um haustið var síðan farið í að skipuleggja upplestra í Kaffistofunni.
Nú síðustu ár hefur Ritlistarhópurinn notið velvildar Bókasafns Kópavogs.  Fastur samastaður fyrir upplestra er í athugun og vonandi leysist það mál fljótlega.

Hér mun verða hægt að nálgast ýmsar upplýsingar um hópinn og meðlimi hans ásamt tilkynningum um fundi og skemmtilegar uppákomur.  Sú nýbreytni hefur verið tekin upp að birta ljóð dagsins.  Slíkt er þó alfarið undir félögum komið, þ.e. að þeir sendi daglega ljóð til birtingar.
Auk þess eru innsendar greinar vel þegnar. 

Skráið ykkur endilega í gestabókina og tjáið hug ykkar.

Sign InView Entries
Hér vantar nánari upplýsingar um fleiri félaga.